Dartlo

Síðast uppfært 30. september 2026.English

Endurgreiðslustefna Dartlo

Ef þú sérð eftir kaupum á Plus á vefnum endurgreiðum við að fullu innan 14 daga frá fyrstu greiðslu. Félagsáskrift endurgreiðum við að fullu innan 30 daga frá fyrstu greiðslu. Þú þarft ekki að gefa upp ástæðu.

Kaup á vefnum

Sendu okkur póst á [email protected] innan 14 daga frá fyrstu greiðslu fyrir Plus, eða innan 30 daga fyrir félagsáskrift, og við endurgreiðum hana að fullu. Endurgreiðslan fer á sama kort. Áskriftin lokast þegar endurgreitt er.

Eftir þann tíma endurgreiðum við ekki tímabil sem er hafið. Þú getur sagt upp hvenær sem er og heldur áskriftinni út greitt tímabil.

Ef eitthvað fór úrskeiðis, til dæmis tvöföld rukkun eða þjónustan virkaði ekki, endurgreiðum við óháð tíma.

Utan Íslands sér Paddle um endurgreiðsluna sem söluaðili. Þú getur haft samband við okkur eða við Paddle gegnum kvittunina.

Kaup í appinu

Apple og Google sjá um endurgreiðslur á kaupum í appinu og við getum ekki endurgreitt þau sjálf. Hjá Apple sækir þú um á reportaproblem.apple.com. Hjá Google sækir þú um í Google Play undir Greiðslur og áskriftir. Láttu okkur samt vita ef eitthvað fór úrskeiðis.

Prufutími

Á 14 daga prufutíma Plus er ekkert rukkað og því ekkert að endurgreiða.

Félagsgjöld og mótsgjöld

Félagið sem innheimtir gjaldið ákveður endurgreiðslur á því. Hafðu samband við stjórn félagsins.

Hafa samband

Emstra tölvuþjónusta ehf., kt. 571025-1240, Öldugerði 4, 860 Hvolsvelli. Netfang: [email protected].

Endurgreiðslur | Dartlo