Í riðli fer sá áfram sem spilaði best. Röðin ræðst fyrst af sigrum. Séu tveir eða fleiri jafnir á sigrum ráða tölurnar úr leikjunum. Sama röð gildir hjá öllum klúbbum.
Í hvaða röð ráða tölurnar?
Fyrst ráða sigrar og svo leggjamunur. Næst kemur meðaltal kvöldsins, svo meðaltal fyrstu níu pílnanna, síðan útskotshlutfall og loks hæsta útskot. Fyrsta talan sem skilur leikmennina að ræður röðinni.
Meðaltalið er sama tala og sést á sjónvarpinu og í úrslitunum. Hver leikur vegur jafnt. Í skönnuðum leik koma tölurnar af skjánum, annars úr köstunum sem voru skráð í símanum.
Af hverju telur innbyrðis viðureign ekki?
Hún getur skilið út þann sem spilaði best. Tökum dæmi úr þriggja manna riðli þar sem tveir fara áfram. Anna vinnur Bjarna, Bjarni vinnur Dísu og Dísa vinnur Önnu. Öll eru með einn sigur og jöfn í leggjum. Innbyrðis viðureign gefur þá enga sanngjarna röð, því hver vann einn og tapaði fyrir öðrum. Meðaltal kvöldsins er Anna 36,10, Bjarni 35,75 og Dísa 33,05, svo Anna og Bjarni fara áfram.
Hvað sér stjórnandinn?
Þegar riðlunum lýkur birtist spjaldið Riðlakeppni lokið efst á Brautum. Þar sést hverjir fara áfram og fyrsta umferð útsláttarins. Hafi tala ráðið röðinni á skurðlínunni segir spjaldið hvaða tala það var og sýnir hana fyrir hvern leikmann. Stjórnandinn velur ekki hver fer áfram.
Hvenær ræður bull-off?
Bull-off ræður bara þegar leikmenn eru jafnir á öllum tölunum. Það gerist helst á kvöldi með Bara hver vann, því þar eru engar tölur. Þá kasta þeir einni pílu hver að miðjunni. Stjórnandinn ýtir á nöfnin í þeirri röð sem þau urðu, þann sem var næst miðju fyrst. Hefja útslátt opnast þegar öll sætin eru skráð.
Breytir þetta stigunum í mótaröð?
Röðin í riðlinum breytir stigunum aðeins ef mótaröðin gefur stig fyrir sæti á kvöldinu. Stig Valhalla mótaraðarinnar koma af sigrum, leggjum, 140, 180 og útskotum, svo röðin í riðli breytir þeim ekki. Heildartafla mótaraðarinnar hefur sína eigin röð, sem lýst er í greininni Mótaröð.