Dartlo

Mótaröð

Draft: written from the screens, not yet reviewed.

ASK DARTLO

Ask in your own words. The answer comes from the help articles, with a link to the article.

Mótaröð er nokkur mót þar sem stigin leggjast saman í eina heildartöflu. Eitt mót er stakt kvöld með sína eigin töflu. Mótaröðin er á Dagskrá og hvert mót hennar er venjulegt Dartlo-mót.

Hvernig reiknast stigin?

Hver mótaröð hefur stigareglu. Hún segir hvað gefst fyrir mætingu, unninn leik, tapaðan leik, unninn legg, 180, 140 til 179, hæsta útskot mótsins og útskot í þrepum, eða sætastig eftir lokastöðu. Tilbúin sniðmát eru til, til dæmis sætastig 10 · 8 · 6 · 5 · 4 · 3 · 2 · 1 og stig fyrir frammistöðu eins og Valhalla notar.

Stigin reiknast þegar stjórn, mótanefnd eða dómari lokar mótinu á Dagskrá. Þau eru alltaf reiknuð út frá mótunum sjálfum. Ef stigareglunni er breytt eru öll mót sem er lokið reiknuð upp á nýtt með nýju reglunni.

Hvað eru bestu mótin?

Mótaröð getur látið aðeins bestu mót hvers leikmanns telja, til dæmis fimm af átta. Þá getur leikmaður misst af þremur mótum án þess að tapa stigum. Hin mótin sjást í sundurliðuninni en bætast ekki við. Tómt þýðir að öll mót telja.

Hvað sýnir taflan?

Taflan sýnir sæti, nafn og dálkana úr stigaskjali Valhalla: STIG, AV, L, VH%, ÚT, 140+ og 180. AV er meðaltal á þrjár pílur, L er fjöldi leikja, VH% er vinningshlutfall og ÚT er hæsta útskot. Raðað er eftir stigum. Í síma styttist langt nafn í fornafn og upphafsstaf, til dæmis John J. Tölur koma úr leikjum sem eru skráðir í Dartlo eða skannaðir af skjánum. Vanti tölu stendur strik, aldrei núll. Mót sem voru skráð af blaði hafa engin leikjagögn og þá segir taflan hve mörg mót tölurnar ná yfir. Flögurnar efst skipta á milli mótaraða klúbbsins. Smelltu á nafn til að sjá hvaðan stigin koma, sundurliðað eftir mótum og flokkum. Séu tveir jafnir að stigum ræður fjöldi unninna leikja, svo unnir leggir og síðan hærra útskot. Þetta er sama röð og í stigaskjali Valhalla mótaraðarinnar. Séu þeir enn jafnir ræður meðaltal mótaraðarinnar. Röðin er sú sama hjá öllum klúbbum. Ef vantar 180 eða 140 í skannaðan leik segir taflan að einhverjir gætu átt inni stig.

Hvað er úrslitakeppni?

Stjórn getur stofnað úrslitamót úr töflunni. Efstu leikmenn töflunnar fara í útslátt, raðað eftir sæti: fyrsti gegn þeim neðsta sem komst inn, svo fyrsti og annar geta fyrst mæst í úrslitaleiknum. Mótið fer á Dagskrá með dagsetningu og tíma og er opnað þaðan. Séu tveir eða fleiri alveg jafnir á öllu þessu á skurðlínunni ræður bull-off við borðið. Stjórn ýtir á nöfnin í þeirri röð sem þau urðu, þann sem var næst miðju fyrst, og þá fyrst er hægt að setja úrslitamótið á dagskrá.

Hvað stillir stjórn á mótaröð?

Á síðu mótaraðarinnar undir Breyta stillir stjórn nafn, hámarksfjölda keppenda, hversu mörg bestu mót telja, stigaregluna, hvaða tölur eru skráðar úr hverjum leik, hámark leikja á mann, riðla og hverjir komast áfram úr hverjum riðli. Hámarksfjöldinn gildir fyrir mót sem ekki eru byrjuð.

Ef útsláttur er á kvöldunum velur stjórn líka hve marga leggi þarf að vinna í hverri umferð útsláttarins. Sjálfgefið er fyrstur í 3 í 16-liða og 8-liða úrslitum, fyrstur í 4 í undanúrslitum og fyrstur í 5 í úrslitum. Seinni umferð er aldrei styttri en sú á undan. Kvöldin taka tölurnar þaðan og stjórnandinn getur breytt þeim þegar hann opnar mótið.

Styrktaraðilar mótaraðarinnar eru líka þar: nafn, vefsíða og merki hvers þeirra, allt að sex. Nöfnin og merkin birtast á DartloTV og í appinu á hverju kvöldi mótaraðarinnar.

Hvað ef mót í mótaröðinni fór ekki fram?

Ef mót í mótaröð hefur ekki verið opnað tveimur tímum eftir að það átti að hefjast fá stjórn og mótanefnd tilkynningu. Í Stjórn birtist þá spjald sem segir að mótið hafi ekki farið fram. Þar velurðu Fresta eða Sleppa.

Fresta færir mótið á nýjan dag og tíma. Sjálfgefið er vika síðar á sama tíma. Ef nýi dagurinn lendir á næsta móti eða seinna færast næstu mót jafnlangt, annars færist bara þetta eina mót. Þú getur breytt því með hakinu og skráningarnar fylgja mótunum.

Sleppa fellir mótið niður og mótaröðin verður einu móti styttri. Næstu mót færast upp um eitt númer. Skráningar á mótið sem var sleppt falla niður en stigin úr fyrri mótum haldast óbreytt.

Hvernig er mótaröð stofnuð?

Stjórn stofnar mótaröð undir Stjórn → Mót. Þar er valið hvort þetta er eitt mót eða mótaröð, fjöldi móta, fyrsta mótið og hvort hin koma vikulega á sama vikudegi, klukkan hvað, hvort mótið er opið gestum, gjaldið, stigareglan og hvernig hvert mót er spilað. Mótin birtast öll í Dagskrá.

RELATED ARTICLES

Klúbbur ›Dagskrá ›Skírteini ›
Did this help?·