Síðast uppfært 19. október 2026.English
Persónuvernd í Dartlo
Dartlo er app og vefur fyrir pílukast og pílufélög. Emstra tölvuþjónusta ehf. rekur Dartlo og ber ábyrgð á persónuupplýsingunum sem þar eru skráðar. Hér stendur hvað er skráð, til hvers, hverjir vinna með það og hvernig þú lætur eyða því.
Hver ber ábyrgð
Emstra tölvuþjónusta ehf., kt. 571025-1240, Öldugerði 4, 860 Hvolsvelli. Netfang: [email protected].
Hvað er skráð
- Aðgangur: nafn og netfang. Þú skráir þig inn með Google, Apple eða kóða sem við sendum á netfangið þitt. Hjá Apple getur netfangið verið dulið áframsendingarnetfang. Prófílmynd ef þú setur hana inn og heimabær ef þú velur hann. Land er áætlað út frá IP-tölu þegar aðgangurinn er stofnaður, og þú getur breytt því.
- Félagsstarf: aðild að pílufélögum, skráning á viðburði, staða félagsgjalda og félagsskírteini.
- Kvöld og leikir: nöfn leikmanna, köst, stig, úrslit og tölfræði. Á kvöldi má skrá nöfn fólks sem er ekki með aðgang.
- Myndir af skjá Scolia eða Autodarts: dómari getur tekið mynd af skjánum til að lesa tölurnar af honum. Myndinni er eytt eftir 30 daga. Tölurnar standa eftir.
- Tilkynningar og stillingar: auðkenni tækis fyrir tilkynningar ef þú leyfir þær, tungumál og útlit.
- Vinir og boð: hverjum þú bætir við sem vini og boð á kvöld.
- Prófanir: netfang ef þú skráir þig í prófun á appinu.
- Tæknilegt: netþjónninn skráir IP-tölu og tíma beiðna í stuttan tíma vegna öryggis og til að verjast misnotkun. Landið sem IP-talan bendir á ræður tungumálinu sem síðan birtist á þar til þú velur annað.
Myndavélin er aðeins notuð til að skanna QR-kóða og til að taka mynd af skjá Scolia eða Autodarts. Dagatalið er aðeins notað þegar þú bætir móti í það. Í Dartlo eru engar auglýsingar og engin greiningartól frá þriðja aðila.
Til hvers
Upplýsingarnar eru notaðar til að reka Dartlo: halda utan um kvöld, mót og mótaraðir, reikna tölfræði og merki, halda félagatal og innheimta félagsgjöld fyrir félögin. Heimildin er samningurinn sem stofnast þegar þú notar þjónustuna. Upplýsingarnar eru ekki seldar.
Hverjir sjá hvað
Þeir sem eru á kvöldi sjá nöfn og úrslit þess kvölds. Félagar sjá úrslit, mótaraðir og tölfræði innan félagsins. Stjórn félags sér félagatal, netföng félaga og stöðu félagsgjalda. Vinir sjá hvort þú ert á kvöldi og geta boðið þér í leik.
Vinnsluaðilar
Þessi fyrirtæki vinna með hluta upplýsinganna fyrir okkar hönd:
- Hostinger: hýsing. Netþjónninn er í Bretlandi, sem ESB telur veita fullnægjandi vernd.
- Google og Apple: innskráning, tilkynningar í síma og kaup á áskrift í appinu.
- Brevo: sendir innskráningarkóða og tölvupóst frá Dartlo.
- Anthropic: les tölurnar af myndum af skjá Scolia eða Autodarts. Anthropic notar myndirnar ekki til að þjálfa gervigreind.
- Kling: kortagreiðslur félagsgjalda og áskriftar. Dartlo fær að vita hvort greitt var, ekki kortanúmerið.
- Paddle: greiðslur fyrir áskrift á vefnum utan Íslands. Dartlo fær að vita hvort greitt var, ekki kortanúmerið.
Hve lengi
Upplýsingarnar eru geymdar meðan aðgangurinn er til. Myndum af skjá er eytt eftir 30 daga.
Þegar þú eyðir aðganginum er prófíllinn, vinir, boð, skráningar á viðburði og auðkenni fyrir tilkynningar eytt. Úrslit á kvöldum og í mótaröðum standa eftir undir nafninu sem skráð var, því þau eru líka hluti af úrslitum annarra. Þau tengjast ekki lengur aðganginum. Ef þú vilt að nafnið þitt verði fjarlægt úr þeim, sendu okkur línu.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá afrit af upplýsingunum um þig, láta leiðrétta þær og láta eyða þeim. Aðganginum getur þú eytt undir Ég → Eyða reikningnum. Aðrar beiðnir sendir þú á [email protected]. Ef þú telur að brotið hafi verið á rétti þínum getur þú kvartað til Persónuverndar, personuvernd.is.
Breytingar
Ef þessi stefna breytist uppfærum við hana hér og dagsetninguna efst.