Síðast uppfært 30. september 2026.English
Skilmálar Dartlo
Þessir skilmálar gilda um notkun á Dartlo og um kaup á Plus og félagsáskrift. Emstra tölvuþjónusta ehf. rekur Dartlo. Með því að nota Dartlo samþykkir þú skilmálana.
Seljandi
Emstra tölvuþjónusta ehf., kt. 571025-1240, Öldugerði 4, 860 Hvolsvelli. Netfang: [email protected].
Þjónustan
Dartlo er app og vefur fyrir pílukast og pílufélög. Þú getur haldið mót, skráð leiki og fylgst með tölfræði. Grunnþjónustan er ókeypis og þú þarft ekki áskrift til að vera með í mótum.
Þú berð ábyrgð á aðganginum þínum og því sem gert er í honum. Ekki nota Dartlo til að brjóta lög, trufla aðra eða misnota þjónustuna. Við getum lokað aðgangi sem gerir það og segjum þá hvers vegna.
Áskriftir og verð
Tvær áskriftir eru í boði. Verð á vefnum á Íslandi eru með virðisaukaskatti.
- Plus er fyrir þá sem halda stærri mót og vilja meiri tölfræði. Plus kostar 790 kr. á mánuði eða 7.900 kr. á ári. Utan Íslands kostar Plus €4,99 á mánuði eða €49 á ári.
- Félagsáskrift er keypt af stjórn félags og gildir fyrir allt félagið. Hún kostar 5.990 kr. á mánuði. Utan Íslands kostar hún €42 á mánuði.
- Í appinu birta Apple og Google verðið í sínum gjaldmiðli áður en þú staðfestir kaupin. Á Íslandi selur Apple í Bandaríkjadölum og Google í evrum.
- Plus fylgir 14 daga prufutími án endurgjalds. Við rukkum ekkert á prufutímanum.
Endurnýjun og uppsögn
Áskrift endurnýjast sjálfkrafa í lok hvers tímabils þar til þú segir henni upp. Uppsögn stöðvar næstu greiðslu. Þú heldur áskriftinni út tímabilið sem þú hefur greitt fyrir.
Áskrift sem þú kaupir á vefnum segir þú upp á áskriftarsíðunni í Dartlo. Áskrift úr appinu segir þú upp í stillingum Apple eða Google. Ef þú eyðir aðganginum þínum segir það ekki upp áskrift hjá Apple eða Google. Segðu henni fyrst upp.
Hver tekur við greiðslunni
- Á vefnum á Íslandi: Emstra selur áskriftina og Kling sér um kortagreiðsluna.
- Á vefnum utan Íslands: Paddle.com Market Ltd selur áskriftina sem söluaðili (merchant of record) og sér um greiðsluna. Kaupskilmálar Paddle gilda um þau kaup.
- Í appinu: Apple eða Google tekur við greiðslunni samkvæmt sínum skilmálum.
Dartlo sér ekki kortanúmerið þitt í neinum þessara tilvika.
Félagsgjöld og mótsgjöld
Félagsgjöld og gjöld fyrir mót renna beint til félagsins sem innheimtir þau, á greiðslusamningi félagsins sjálfs. Félagið er seljandinn í þeim kaupum og ber ábyrgð á þeim. Emstra tekur ekki við þeim peningum.
Verðbreytingar
Ef verð breytist látum við vita fyrir fram. Nýtt verð gildir frá næstu endurnýjun eftir tilkynninguna, svo þú getur sagt upp áður.
Endurgreiðslur
Um endurgreiðslur gildir endurgreiðslustefna Dartlo á dartlo.app/endurgreidsla.
Ábyrgð
Við leggjum okkur fram um að Dartlo virki, en getum ekki lofað að þjónustan sé alltaf aðgengileg eða villulaus. Við getum breytt eða hætt með eiginleika. Ef við hættum með áskrift sem þú greiðir fyrir hættum við að rukka og látum þig vita.
Að því marki sem lög leyfa takmarkast ábyrgð okkar við það sem þú greiddir okkur síðustu tólf mánuði. Þetta skerðir ekki réttindi þín sem neytanda.
Lög og varnarþing
Um skilmálana gilda íslensk lög og mál fara fyrir íslenska dómstóla. Neytandi á EES-svæðinu heldur rétti sínum samkvæmt lögum búsetulands síns.
Ef skilmálarnir breytast þannig að það skipti þig máli látum við vita í tölvupósti áður en breytingin tekur gildi.