Dartlo

Greiðslur

Draft: written from the screens, not yet reviewed.

ASK DARTLO

Ask in your own words. The answer comes from the help articles, with a link to the article.

Klúbburinn er sinn eigin söluaðili hjá Kling og fær greiðslurnar beint inn á sinn banka. Dartlo tekur ekki við félagsgjöldum eða þátttökugjöldum klúbbsins.

Tenging við Kling er fyrir klúbba á Íslandi. Utan Íslands er áskrift Dartlo greidd með korti gegnum Paddle.

Hvernig tengi ég Kling?

Klúbburinn þarf Kling-reikning. Hann sækir um á kling.is með kennitölu félagsins og bankareikningi. Úr Kling-stjórnborðinu tekurðu API-lykilinn og límir hann undir Tenging við Kling. Prófa og vista athugar lykilinn og sýnir hvort hann er í lagi, prófunarlykill eða með villu.

Vefkrókur klúbbsins er slóð sem þú skráir hjá Kling undir Notifications og Webhooks, og undirskriftarlykilinn þaðan límirðu í reitinn. Án þess sér Dartlo ekki hvenær greiðsla er komin.

Hvað eru félagsgjöld?

Þrjár leiðir eru til: mánuður, sex mánuðir og ár. Þú kveikir á þeim sem klúbburinn býður og setur verð. Verðið er það sem kortið er rukkað um, með virðisaukaskatti ef hann á við. Félag án vsk. velur Enginn. Vörurnar verða til í Kling-reikningi klúbbsins.

Félagar greiða undir Klúbbur. Yfirlitið sýnir hversu margir hafa greitt og hversu margir eru með greiðslu sem tókst ekki. Greiðslur sem komu með millifærslu eða reiðufé skráir stjórn á félagatalinu með Merkja greitt. Klúbbur sem notar Abler fyrir félagsgjöld lætur þetta vera.

Hvað er þátttökugjald?

Þegar Kling er tengt má setja þátttökugjald á mót klúbbsins. Gjaldið birtist á mótinu í Dagskrá. Skráningar með gjaldi birtast undir Mótsgjöld: hver greiddi, fyrir hvaða mót, og einn hnappur til að endurgreiða.

Flísarnar efst sýna greiðslur mánaðarins, fjölda þeirra og hvað hefur verið endurgreitt.

RELATED ARTICLES

Stjórn og Klúbburinn ›Félagatal ›Stjórn → Mót og sniðmát ›
Did this help?·